Blog Layout

Landsátakið Syndum hefst 1. nóvember nk.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2022. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. 
Átakið var formlega sett á laggirnar á sama tíma í fyrra og var þátttakan þá gríðarlega góð, en alls tóku landsmenn sig til og syntu heila 11,6 hringi í kringum landið
Syndum - Landsátak í sundi, er framhald af Íþróttaviku Evrópu. Markmið
Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.
Síðustu ár hafa sýnt okkur með óyggjandi hætti að góð heilsa er ómetanleg.
Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur. Íslendingar hafa verið duglegir að stunda sund enda búum við vel að góðum sundlaugum um allt land. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.
 
Syndum saman í kringum Ísland. Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu 
www.syndum.is. Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.
 
Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á 
www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. 

Þeir sem skrá sig og taka þátt eiga möguleika á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga

Munum eftir því hvað sund er frábært!

By Linda Laufdal November 5, 2024
Svipmyndir frá Íþróttaviku Evrópu 2024. Myndband
By Linda Laufdal October 10, 2024
Hér er skemmtileg frásögn frá Fjölbrautarskóla Suðurlands
By Linda Laufdal October 10, 2024
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2024. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna
By Linda Laufdal October 8, 2024
Laugardaginn 12. október, kl. 13, verður Götuganga Akureyrar haldin í annað sinn. Vonandi sér fjöldinn allur sér fært að mæta. Frítt er í gönguna og gaman fyrir göngugarpa bæjarins að hittast og ganga saman tæplega 5 km leið meðfram Pollinum.
By Linda Laufdal October 8, 2024
Í gær kláraðist Íþróttavika Evrópu formlega hjá okkur hjá ÍBA þar sem haldinn var frábær fyrirlestur tengt næringu fyrir heilsu og árangur íþróttafólks. Fyrirlesturinn var haldinn í hátíðarsal Háskólans á Akureyri í samstarfi við Akureyrarbæ, ÍSÍ og HA
By Linda Laufdal September 24, 2024
Hér má sjá dagskrá Menntaskólanns á Ísafirði fyrir Íþróttaviku Evrópu
By Linda Laufdal September 24, 2024
Hér má sjá dagskrá Héraðsambands Strandamanna fyrir Íþróttaviku Evrópu 2024
By Linda Laufdal September 24, 2024
Hér má sjá dagsrká Árborgar fyrir Íþróttaviku Evrópu
By Linda Laufdal September 24, 2024
Hér má sjá dagskrá Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum fyrir Íþróttaviku Evrópu
By Linda Laufdal September 24, 2024
Hér má sjá dagsrká Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir Íþróttaviku Evrópu
More Posts
Share by: