Blog Layout

Göngum í skólann hefst 6. september

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samtarfsaðilum ræsir verkefnið Göngum í skólann í autjánda sinn miðvikudaginn 6. september næstkomandi. Ætlar þinn skóli ekki örugglega að taka þátt í ár?

Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og fyrsta árið voru þátttökuskólar 26 en alls 82 skólar skráðu sig til leiks árið 2022.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Átaksverkefnið er orðið að árlegum viðburði í mörgum skólum og býður upp á lærdómsríka og skemmtilega leið fyrir nemendur til að fræðast um umferðarreglur, öryggi og umhverfismál. Þeir skólar sem ætla að taka þátt í Göngum í skólann þurfa bara að fara í "Skráning" á
www.gongumiskolann.is og tilgreina nafn skóla og tengiliðs ásamt stuttri lýsingu á hvað viðkomandi skóli ætlar að gera í tilefni af Göngum í skólann mánuðinum.

Hér er frábært video frá Samgöngustofu,  "Öruggasta leiðin í skólann" 

By Linda Laufdal November 5, 2024
Svipmyndir frá Íþróttaviku Evrópu 2024. Myndband
By Linda Laufdal October 10, 2024
Hér er skemmtileg frásögn frá Fjölbrautarskóla Suðurlands
By Linda Laufdal October 10, 2024
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2024. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna
By Linda Laufdal October 8, 2024
Laugardaginn 12. október, kl. 13, verður Götuganga Akureyrar haldin í annað sinn. Vonandi sér fjöldinn allur sér fært að mæta. Frítt er í gönguna og gaman fyrir göngugarpa bæjarins að hittast og ganga saman tæplega 5 km leið meðfram Pollinum.
By Linda Laufdal October 8, 2024
Í gær kláraðist Íþróttavika Evrópu formlega hjá okkur hjá ÍBA þar sem haldinn var frábær fyrirlestur tengt næringu fyrir heilsu og árangur íþróttafólks. Fyrirlesturinn var haldinn í hátíðarsal Háskólans á Akureyri í samstarfi við Akureyrarbæ, ÍSÍ og HA
By Linda Laufdal September 24, 2024
Hér má sjá dagskrá Menntaskólanns á Ísafirði fyrir Íþróttaviku Evrópu
By Linda Laufdal September 24, 2024
Hér má sjá dagskrá Héraðsambands Strandamanna fyrir Íþróttaviku Evrópu 2024
By Linda Laufdal September 24, 2024
Hér má sjá dagsrká Árborgar fyrir Íþróttaviku Evrópu
By Linda Laufdal September 24, 2024
Hér má sjá dagskrá Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum fyrir Íþróttaviku Evrópu
By Linda Laufdal September 24, 2024
Hér má sjá dagsrká Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir Íþróttaviku Evrópu
More Posts
Share by: